Ókeypis samfélagsþjónusta frá Kastro
Er tölvupósturinn þinn varinn?
Sláðu inn lénið þitt og við segjum þér á mannamáli hvort hægt sé að senda póst í ykkar nafni, og nákvæmlega hvernig á að laga það.
Svona virkar þetta
- Athugaðu lénið
Við flettum upp opinberum póststillingum lénsins. Engu er breytt.
- Afritaðu færslurnar
Þú færð nákvæmar færslur til að líma inn í DNS, eitt skref í einu, fyrir þína póstþjónustu.
- Athugaðu aftur
Ýttu á „Athuga aftur“ eftir hverja breytingu og sjáðu skrefin verða græn.
Persónuvernd frá grunni
Við spyrjum aldrei hver þú ert.Dmark er viljandi án aðganga. Lénalistinn þinn býr í vafranum þínum, ekki í gagnagrunni hjá okkur.
- Engin skráning, ekkert lykilorð, ekkert netfang.
- Vistuð lén geymast í vafraköku á þessu tæki. Eyddu henni og þau eru farin.
- Við athugun er aðeins lénsheitið, og valfrjáls DKIM selector, sent til að fletta upp opinberum DNS-færslum. Niðurstöður eru ekki vistaðar á netþjónum okkar.
Dmark / Kastro
Ókeypis athugun á tölvupóststillingum frá Kastro
Dmark athugar opinberar DNS færslur fyrir SPF, DKIM, DMARC og BIMI. Sláðu inn lén til að sjá hvort hægt sé að senda póst í þínu nafni og fylgdu síðan skref-fyrir-skref lagfæringu með nákvæmum færslum fyrir þína póstþjónustu. Engir aðgangar eru til: vistuð lén eru geymd í vafranum þínum.
Svona virkar Dmark
Hvað þýðir niðurstaðan?
Óvarið þýðir að DMARC vantar eða er aðeins í eftirliti, svo hver sem er getur sent póst sem lítur út fyrir að koma frá léninu. Að hluta varið þýðir að falsaður póstur fer í ruslpóst. Varið þýðir að póstþjónar hafna honum alveg. Skrefin sýna nákvæmlega hvaða færslum á að bæta við, í öruggri röð. Niðurstaðan lýsir opinberum DNS-stillingum, ekki því hvort allur póstur frá ykkur berist.
Til hvers eru SPF, DKIM, DMARC og BIMI?
SPF tilgreinir hvaða netþjónar mega senda póst fyrir lén. DKIM birtir lykil til að sannreyna undirritaðan póst; Dmark athugar DNS lykilfærsluna, ekki undirritun skilaboða. DMARC athugar samsvörun við lénið í From hausnum og birtir stefnu og skýrslumóttakendur. BIMI birtir upplýsingar um vörumerki sem studdar póstveitur geta sýnt, að uppfylltum kröfum þeirra um merki og vottorð.
Þarf ég að stofna aðgang?
Nei, og það er ekki hægt. Dmark er viljandi án aðganga. Vistuð lén og DKIM selectors geymast í vafraköku í þessum vafra og nýjustu niðurstöður eru vistaðar staðbundið. Ef þú eyðir kökunni hverfa þau. Dmark veitir ekki stöðuga vöktun.
Breytir Dmark DNS færslunum mínum eða hýsir SPF?
Nei. Dmark les opinberar DNS færslur og veitir leiðsögn. Þú gerir breytingar hjá DNS veitandanum þínum. Ítarlegi SPF valkosturinn býr til stöðumynd af studdum tilvísunum eftir þörfum. Þetta er ekki hýst SPF og færsla uppfærist ekki sjálfkrafa þegar IP svið veitenda breytast.
Hvað verður um lénið mitt þegar ég athuga það?
Valið lén er sent til Kastro Lookup fyrir SPF og DMARC mat og opinberar DNS færslur eru sóttar fyrir DKIM og BIMI. Vistuð lén eru geymd í vafraköku og niðurstöður athugana eru ekki vistaðar á netþjónum Dmark. Lénsheiti eru ekki send í sérsniðnum greiningarviðburðum Dmark.
Af hverju finnst DKIM lykillinn ekki?
Lén getur notað sérsniðinn DKIM selector sem leit að algengum selectors finnur ekki. Sláðu inn selector frá póstveitandanum eða s= gildið úr DKIM-Signature haus og athugaðu aftur. Lykill sem finnst ekki sannar ekki að DKIM vanti. Staðfestu raunverulegan póst frá öllum sendiþjónustum áður en þú herðir DMARC framfylgd.
Dmark er ókeypis tól frá Kastro. Hafðu samband við Kastro ef þú vilt aðstoð við að yfirfara tölvupóststillingar lénsins. Hafa samband við Kastro ↗

